Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1279, 112. löggjafarþing 520. mál: Búnaðarmálasjóður (heildarlög).
Lög nr. 41 15. maí 1990.

Lög um Búnaðarmálasjóð.


1. gr.

     Greiða skal gjald af vöru og leigusölu í landbúnaði sem rennur í sérstakan sjóð er nefnist Búnaðarmálasjóður. Gjald þetta, sem nefnt er búnaðarmálasjóðasgjald, skal reikna sem hlutfall af þeirri upphæð sem framleiðendum er greidd á hverjum tíma.

2. gr.

     Gjaldskyld vöru- og leigusala skiptist á eftirfarandi hátt:
  1. Greiða skal allt að 0,75 % gjald af:
    1. alifuglarækt,
    2. svínarækt.
  2. Greiða skal allt að 1,5 % gjald af:
    1. nautgripaafurðum,
    2. sauðfjárafurðum,
    3. afurðum hrossa,
    4. garð- og gróðurhúsaafurðum hvers konar,
    5. loðdýraafurðum.
    6. Með reglugerð skal ákveða, eftir því sem ástæða þykir til, gjald af sölu útfluttra lífgripa, skógarafurðum, hlunnindum, hestaleigu, annarri leigu, þjónustu eða söluvöru í landbúnaði.


3. gr.

     Búnaðarmálasjóðsgjald það, sem um ræðir í 1. gr., greiðist af þeim sem kaupa eða taka við vörunum frá framleiðendum sem milliliður að smásöludreifingu og dregst við útborgun afurðaverðs frá því sem framleiðandanum er greitt. Þeir framleiðendur, sem selja vöru sína án milliliða til neytenda eða til smásöluaðila, skulu standa skil á gjaldinu. Sá hluti búnaðarmálasjóðsgjalds er rennur til Stéttarsambands bænda og búgreinafélaga skal ekki teljast til framleiðslukostnaðar við opinbera verðákvörðun.
     Skylt er viðskiptaaðilum og framleiðendum, sem greiðsluskyldir eru hverju sinni fyrir gjaldi þessu, að gefa innheimtuaðila skýrslu um móttekið vörumagn og verð fyrir það til framleiðanda svo sem reglugerð mælir fyrir um.

4. gr.

     Tekjum af búnaðarmálasjóðsgjaldi, sem innheimt er skv. 1. gr. og A- og B-liðum 2. gr., skal skipt þannig:
Greiðsla Greiðsla
af A-flokki af B-flokki
skv. 2. gr. skv. 2. gr.
Til Stéttarsambands bænda 0,100% 0,250%
Til búnaðarsambanda 0,250% 0,500%
Til búgreinafélaga 0,075% 0,075%
Til Búnaðarfélags Íslands 0,025% 0,075%
Til Stofnlánadeildar landbúnaðarins 0,100% 0,200%
Til forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum,
sbr. lög nr. 32/1979 0,200% 0,400%

     
     Landbúnaðarráðherra er heimilt að fenginni beiðni frá Stéttarsambandi bænda fyrir hönd búgreinafélags að fella niður eða endurgreiða gjald til félagsins að hluta eða öllu leyti. Óski búgreinafélag að nýta sér þessa heimild skal um það tekin ákvörðun á aðalfundi þess og skal hún hafa borist landbúnaðarráðherra eigi síðar en 1. september ár hvert.
     Landbúnaðarráðherra er heimilt að fenginni beiðni frá Stéttarsambandi bænda að fella niður innheimtu á gjaldi til forfalla-og afleysingarþjónustu í sveitum vegna einstakra búgreina enda falli þá niður réttur búgreinarinnar til forfallaþjónustu.

5. gr.

     Þrátt fyrir ákvæði 2. og 4. gr. laganna getur landbúnaðarráðherra heimilað búgreinafélagi annarra greina en sauðfjár- og nautgriparæktar að innheimta allt að 1,0% gjald í stað 0,075% skv. 4. gr., enda liggi fyrir meirihlutasamþykkt viðkomandi búgreinafélags og samþykki Stéttarsambands bænda. Ákvörðun þessi gildi til eins árs í senn.

6. gr.

     Þrátt fyrir ákvæði b-liðar 5. gr. laga um Bjargráðasjóð, nr. 51 27. maí 1972, getur stjórn Bjargráðasjóðs undanþegið framleiðsluvörur einstakra búgreina greiðsluskyldu að hluta eða öllu leyti. Komi fram beiðni um slíkt frá Stéttarsambandi bænda er stjórninni skylt að verða við því.

7. gr.

     Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um gjaldskyldu, innheimtu, gjalddaga, lögvernd, álagningu gjaldanna skv. áætlun og annað er lög þessi varðar, að fengnum tillögum Stéttarsambands bænda, Búnaðarfélags Íslands og Framleiðsluráðs landbúnaðarins sem annast innheimtu gjaldsins.
     Gjald þetta má taka lögtaki.

8. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. september 1990. Frá sama tíma falla úr gildi eftirfarandi lög og lagaákvæði:
  1. Lög um búnaðarmálasjóð, nr. 40 7. maí 1982.
  2. 2. tölul. 4. gr. laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, nr. 45 16. apríl 1971, sbr. breytingu með lögum nr. 41/1982.
  3. XII. kafli laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, nr. 46 16. apríl 1971.
  4. 1. og 2. mgr. 3. gr. laga nr. 32 29. maí 1979, um forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum.


Ákvæði til bráðabirgða
I.
     Vegna þeirra breytinga, sem verða á tekjum Stofnlánadeildar landbúnaðarins með lögum þessum, skulu verkefni Byggingastofnunar landbúnaðarins, eins og þau eru skilgreind í XII. kafla laga nr. 45/1971, önnur en þau sem um getur í a-lið 67. gr., færast frá Stofnlánadeild landbúnaðarins. Skulu þjónustuverkefni færast til Búnaðarfélags Íslands en rannsóknaverkefni til Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, eftir því sem við getur átt.

II.
     Þar til fram hefur farið endurskoðun á lögum nr. 32/1979, um forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum, skal yfirstjórn forfallaþjónustunnar falin þriggja manna stjórn. Skal einn tilnefndur af Búnaðarfélagi Íslands, einn af Stéttarsambandi bænda og einn af búnaðarsamböndunum sameiginlega.

III.
     Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. skal Stofnlánadeild landbúnaðarins halda tekjum eins og orðið hefðu að óbreyttum lögum til 30. nóvember 1990. Skal Búnaðarmálasjóður því greiða Stofnlánadeild þær tekjur sem ella hefðu runnið þangað mánuðina september, október og nóvember 1990.

Samþykkt á Alþingi 5. maí 1990.